Quantcast
Channel: Vísir - Forsíða
Viewing all 17399 articles
Browse latest View live

Erótísk íslensk bókajól 2013

$
0
0
„Ég get fullyrt að á næsta ári verður uppgangur í útgáfu á íslenskum erótískum bókmenntum,“ segir Egill Örn Jóhannsson, framkvæmdastjóri Forlagsins, þegar hann er inntur eftir því hvort íslenskir höfundur séu að stökkva á erótísku bókmenntabylgjuna líkt...

Ábyrg fyrirtæki njóta ávinnings

$
0
0
Landsvirkjun hefur ráðið Rögnu Söru Jónsdóttur í starf forstöðumanns samfélagsábyrgðar. Um er að ræða nýja stöðu hjá fyrirtækinu en Landsvirkjun er í hópi fyrstu fyrirtækjanna hér á landi til að búa til stefnu um samfélagslega ábyrgð.

Einn fágætasti hvalur heims sást í fyrsta sinn

$
0
0
Vísindamenn hafa komist að því að tveir hvalir, sem rak á strönd við Nýja-Sjáland á gamlárskvöld árið 2010, hafi verið af einni fágætustu hvalategund heims.

Android í skotlínunni

$
0
0
„Android er í sömu stöðu og Windows var í hér áður fyrr,“ segir Rik Ferguson, yfirmaður þróunar, rannsókna og samskipta hjá tölvuöryggisfyrirtækinu TrendMicro í Evrópu.

Skattar lækki til að örva efnahagslífið

$
0
0
Samtök atvinnulífsins kynntu í gær nýja skýrslu um skattamál. Telja samtökin að skattahækkanir síðustu ára hafi valdið efnahagslífinu skaða og leggja til að skattar verði á næstu árum lækkaðir um sem nemur 2,5% af landsframleiðslu.

Þingnefndarformaður telur brögð í tafli á Eir

$
0
0
Rekstur hjúkrunarheimilisins Eirar kann að kalla á lögreglurannsókn, að mati Björns Vals Gíslasonar, formanns fjárlaganefndar Alþingis. Hann hefur verið skipaður í samráðshóp sem mun fylgjast náið með samningaviðræðum Eirar við kröfuhafa sína.

Fréttaskýring: Fiskimið falin undir ísnum

$
0
0
Með hlýnun á norðurhveli hopar ísþekja Íshafsins hratt. Þar opnast aðgengi að hafsvæði sem gæti fóstrað stóra fiskstofna enda landgrunnið undir ísnum víðáttumikið. Ísland gæti í framtíðinni átt þar sóknarfæri.

Fréttaskýring: Hvað þarf að hafa í huga áður en haldið er utan í verslunarferð?

$
0
0
Viðurlög eru nokkur við smygli á tollskyldum varningi um „græna“ hliðið í Leifsstöð. Þá er varan gerð upptæk meðan unnið er úr málum. Vissara er að hafa með sér kvittanir fyrir dýrum hlutum sem fólk tekur með sér úr landi.

Mun meiri möguleikar heldur en síðast

$
0
0
Íslenska kvennalandsliðið í fótbolta lenti í riðli með Þýskalandi, Noregi og Hollandi í úrslitakeppni EM í Svíþjóð næsta sumar en dregið var í gær.

Halda útiliðin áfram að vinna í Hafnarfjarðaslagnum?

$
0
0
FH tekur á móti toppliði Hauka í dag í lokaleik 7. umferðar N1 deildar karla og fyrsta Hafnarfjarðarslag tímabilsins en leikurinn hefst klukkan 15.00 í Kaplakrika.

Margir vildu afbrigðilegt kynlíf

$
0
0
Leikkonan María Birta Bjarnadóttir hefur höfðað skaðabótamál á hendur 25 ára gamalli konu sem setti auglýsingu í nafni Maríu inn á vefinn Einkamál. Hún krefst hálfrar milljónar króna í bætur auk málskostnaðar.

Víða 15-23 metrar á sekúndu í dag

$
0
0
Klukkan sex í morgun var norðanátt, víða hvassviðri eða stormur, en hægari vindur á Suðaustur- og Austurlandi samkvæmt upplýsingum frá Veðurstofu.

Líkamsárás við þýska barinn

$
0
0
Lögreglan fékk tilkynningu um líkamsárás við Þýska barinn í nótt. Þar var dyravörður sleginn í andlitið en atvikið er flokkað sem minniháttar atvik af hálfu lögreglu. Árásarmaðurinn var látinn laus eftir að lögreglan hafði rætt við hann.

Vegagerðin: Ófært á Steingrímsfjarðarheiði og Holtavörðuheiði

$
0
0
Óveður er á sunnanverðu Snæfellsnesi og snjóþekja er á Vatnaleið en hálka á Fróðárheiði samkvæmt upplýsingum frá Vegagerðinni. Einnig er ófært á Holtavörðuheiði og beðið mokstur vegna veðurs. Þæfingsfærð er á Bröttubrekku og skafrenningur.

Mér var sagt að ég gæti ekki eignast börn

$
0
0
Stjörnubarnið og fyrirsætan Peaches Geldof er stolt móðir sonarins Astala sem hún eignaðist með eiginmanni sínum Tom Cohen. Astala kom í heiminn fyrir sex mánuðum en áður en Peaches varð ólétt var henni sagt að hún gæti ekki eignast börn.

Býður mömmu í mat

$
0
0
Leikkonan Katherine Heigl bauð móður sinni Nancy í hádegismat á veitingastaðnum Katsuya í Los Angeles. Þær mæðgur eru ekki aðeins bestu vinkonur heldur er Nancy líka umboðsmaður dóttur sinnar.

Búið hjá Bieber

$
0
0
Söngvarinn Justin Bieber er hættur með kærustunni sinni leik- og söngkonunni Selenu Gomez.

Töff tískulið á tískusýningu

$
0
0
Það var margt manninn á tískusýningu Ýrar Þrastardóttur fatahönnuðar og skartgripahönnuðarins Orra Finnbogasonar á Kexi hosteli á fimmtudagskvöldið. Tískuspekúlantar fjölmenntu til að berja fatnaðinn og fylgihlutina augum og flestum virtist líka vel.

NEC Nijmegen kaupir tvo Íslendinga

$
0
0
Daði Bergsson og Adam Örn Arnarson eru á leið til hollenska úrvalsdeildarfélagsins NEC Nijmegen. Magnús Agnar Magnússon, umboðsmaður þeirra, staðfesti þetta í viðtali við Vísi.

Marko Marin mögulega á leið aftur til Þýskalands

$
0
0
Marko Marin hefur nánast ekkert fengið að spila síðan hann gekk til liðs við Chelsea í sumar. Líklegt er að hann verði lánaður annað í janúar.
Viewing all 17399 articles
Browse latest View live